Byggingarmál
- Byggingarmál
Byggingarmál
Mannvirkjastofnun fer með yfirumsjón byggingarmála á Íslandi. Stofnunin fer því m.a. með undirbúning reglugerða og gerð leiðbeininga á sviði byggingarmála, aðgengismál, löggildingu hönnuða og iðnmeistara, útgáfu starfsleyfa fyrir byggingarstjóra og fagiltar skoðunarstofur á byggingarsviði. Stofnunin skal einnig sinna markaðseftirliti með byggingarvörur og taka þátt í gerð íslenskra og evrópskra staðla á sviði byggingarmála.
Meginþungi byggingareftirlits í landinu er á höndum sveitarfélaganna sem ráða byggingarfulltrúa til að sinna útgáfu byggingarleyfa og framkvæmd byggingareftirlits. Þó er gert ráð fyrir að með tímanum verði allt byggingareftirlit framkvæmt af faggiltum aðila í samræmi við ákvæði skoðunarhandbóka sem Mannvirkjastofnun býr til.
Byggingarmál
Rafmagnsöryggi
Löggildingar
Um stofnunina
Forvarnir
Skúlagötu 21 · 101 Reykjavík · Sími: 591 6000 · Fax: 591 6001 · mvs@mvs.is · Opið frá kl. 8:30 - 16:00 virka daga

