• Slökkvilið

Slökkvilið

Mannvirkjastofnun fer með yfirumsjón með slökkvistarfi sveitarfélaga í þeim tilgangi að tryggja virkt slökkvistarf á landinu öllu. Stofnunin sér um eftirlit með því að slökkvilið séu þannig skipulögð, búin tækjabúnaði og mönnuð, með mannskap sem hafi nægjanlega menntun og þjálfun til að sinna hlutverki sínu, að það ráði við þau verkefni sem því eru falin með lögum nr. 75/2000. Þetta er m.a. gert með úttektum á slökkviliðum, vatnsveitum og búnaði slökkviliða. Auk þess hefur samþykkir Mannvirkjastofnun brunavarnaráætlanir sveitarfélaga.