08.01 2020

Húsnæðis og mannvirkjastofnun (HMS)

Húsnæðis og mannvirkjastofnun (HMS)

Íbúðalánasjóður og Mannvirkjastofnun hafa nú sameinast undir nýju nafni, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS).  Sameiningunni er ætlað að stuðla að heildstæðri yfirsýn yfir húsnæðis- og mannvirkjamál á einum stað ásamt því að efla stefnumótun og framkvæmd húsnæðis- og mannvirkjamála til hagsbóta fyrir almenning.
Þann 9. janúar flytjum við starfsemi okkar að Borgartúni 21 með nýju símanúmeri, 440-6400 og nýrri heimasíðu www.hms.is þar sem finna má allar upplýsingar um starfsemi sameinaðrar stofnunar.