14.01 2020

Brunahætta af barnapíutækjum frá Philips

Brunahætta af barnapíutækjum frá Philips

Húsnæðis- og mannvirkjastofnun vekur athygli á innköllun Philips á barnapíutækjum af gerðunum TM5AYYWWXXXXXX, TM5BYYWWXXXXXX og TM5CYYWWXXXXXX vegna brunahættu sem af þeim getur stafað. Hættan stafar af því að í undantekningartilfellum getur rafhlaðan í tækjunum ofhitnað þegar þau eru í hleðslu og valdið með því brunahættu. Umrædd barnapíutæki voru seld frá því í janúar 2016 til mars 2018 víða um heim. Húsnæðis- og mannvirkjastofnun er kunnugt um að á Íslandi voru barnapíutæki af þessum gerðum seldar hjá Heimilistækjum á því tímabili sem um ræðir. Hugsanlegt er að þær hafi einnig verið boðnir fram af öðrum söluaðilum hér á landieða borist hingað til lands í gegnum netverslanir.

Rafföng: Barnapíutæki.

Framleiðandi/Vörumerki: Philips TM5AYYWWXXXXXX, Philips TM5BYYWWXXXXXX og Philips TM5CYYWWXXXXXX.

Hætta: Brunahætta.

Þekktir söluaðilar á Íslandi: Heimilistæki.

Sölutímabil: Frá því í janúar 2016 til mars 2018.

Húsnæðis- og mannvirkjastofnun beinir því til allra eigenda og notenda barnapíutækja sem brunahætta getur stafað af að hætta notkun þeirra þegar í stað og hafa samband söluaðila og/eða framleiðanda.
Sjá frekari upplýsingar og leiðbeiningar í innköllun framleiðanda