Fréttalisti

  • Listar yfir byggingarstjóra og iðnmeistara komnir á heimasíðu Mannvirkjastofnunar

    Búið er að setja lista á heimasíðu Mannvirkjastofnunar yfir byggingarstjóra og iðnmeistara. Hægt er að nálgast þá með því að að fara á eftirfarandi slóð á heimsíðunni, Byggingarmál/Löggildingar eða Byggingarmál/Starfsleyfi, eða fara á slóðirnar hér að neðan.

    Skoða lista yfir löggilta iðnmeistara

    Skoða lista yfir byggingarstjóra með starfsleyfi

    MEIRA
  • Ársskýrsla fyrir árið 2011 um markaðseftirlit raffanga

    Mannvirkjastofnun hefur yfirumsjón með markaðsgæslu raffanga á Íslandi auk þess að annast markaðseftirlit með rafföngum sem við notkun er ætlað að vera varanlega tengd mannvirkjum, þ.e. skrúfuð eða boltuð föst eða tengd fastri raflögn í mannvirkjum, sem og rafföngum til iðnaðar- og atvinnunota. Stofnunin fylgist með rafföngum á markaði og tekur við ábendingum frá notendum og öðrum aðilum.
    Faggilt skoðunarstofa, Aðalskoðun hf, annast í umboði Mannvirkjastofnunar framkvæmd skoðana á rafföngum á markaði í samræmi við gildandi samning hverju sinni, verklagsreglur og skoðunarhandbók Mannvirkjastofnunar.
    Komin er út ársskýrsla Aðalskoðunar um markaðseftirlit raffanga fyrir árið 2011. Þar kemur m.a. fram að farið var í 156 heimsóknir til söluaðila raffanga á síðasta ári og 7.552 rafföng „skimuð" í þessum heimsóknum - skýrsluna má nálgast á slóðinni hér að neðan.

    Skoða ársskýrslu um markaðseftirlit raffanga

    MEIRA
  • Sérprentun af nýrri byggingarreglugerð hefur verið gefin út

    Sérprentun af nýrri byggingarreglugerð er til sölu á skrifstofu Mannvirkjastofnunar. Hún er með gormakjöl og því þægileg til notkunar og inniheldur bæði efnisyfirlit og atriðisorðaskrá. Hún kostar 1.500 kr.MEIRA
  • Eldvarnabandalagið gerir fræðsluefni um eigið eldvarnaeftirlit

    Eldvarnabandalagið hefur gefið út kynningarefni, leiðbeiningar, gátlista og önnur gögn sem nýtast fyrirtækjum og stofnunum við að koma á og viðhalda eigin eldvarnaeftirliti. Rafræn gögn eru aðgengileg hér á vef Mannvirkjastofnunar en kynningarefni og leiðbeiningar hafa einnig verið prentuð. Fyrirtæki og stofnanir geta nálgast prentgögnin hjá tryggingafélagi sínu eða slökkviliði. Á vefsvæði Eldvarnabandalagsins er einnig að finna handbók um eldvarnir heimilisins. 

    Ríkar ástæður eru fyrir fyrirtæki og stofnanir til að taka upp eigið eldvarnaeftirlit. Það stuðlar að auknum skilningi eigenda og starfsfólks á mikilvægi eldvarna og getur dregið verulega úr hættu á að eldur komi upp. Komi eldur upp engu að síður eru miklar líkur á að ráða megi niðurlögum hans fljótt og draga úr tjóni, hafi rétt verið staðið að eldvörnum og fyrstu viðbrögðum. Slökkvilið og tryggingafélög hafa ákveðið að taka höndum saman um að heimsækja fyrirtæki og hvetja þau til eigin eldvarnaeftirlits. Þau hyggjast jafnframt fræða starfsfólk um eldvarnirnar heima fyrir. Gögn vegna verkefnisins eru á vefsvæði Eldvarnabandalagsins. 

    Skoða vefsvæði Eldvarnabandalagsins um eldvarnir fyrirtækja og heimilaMEIRA
  • Byggingarreglugerð með efnisyfirliti og atriðisorðaskrá

    Búið er að setja á heimasíðu Mannvirkjastofnunar Byggingarreglugerð nr. 112/2012 sem er með efnisyfirliti og atriðisorðaskrá á pdf-formi og má skoða hér að neðan. Vakin er athygli á að ef mismunur er á milli þessarar útgáfu og þeirrar sem finna má á heimasíðu Stjórnartíðinda, www.stjornartidindi.is, að þá gildir útgáfan sem finna má á heimasíðu Stjórnartíðinda.

    Skoða Byggingarreglugerð nr. 112/2012 með efnisyfirliti og atriðisorðaskrá

    MEIRA