Um stofnunina
- Um stofnunina
- :
- Fréttalisti
- :
- Nánar um frétt
Kynningarfundir um nýja byggingarreglugerð nr. 112/2012
Ný lög um mannvirki tóku gildi 1. janúar 2011 og í framhaldi af því fór fram umfangsmikil vinna við endurskoðun byggingarreglugerðar, sem nú hefur verið undirrituð og heitir Byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Umhverfisráðuneytið og Mannvirkjastofnun standa því fyrir sjö kynningarfundum um nýja byggingarreglugerð, sem hér segir:
Föstudag 10. febrúar kl. 9.00 – 12.00 á Grand Hóteli í Reykjavík
Fimmtudag 16. febrúar kl. 9.00 – 12.00 á Hótel KEA, Akureyri
Mánudag 20. febrúar kl. 9.00 – 12.00 á Hótel Hamri, Borgarnesi
Þriðjudag 21. febrúar kl. 9.00 – 12.00 í Íþróttaakademíunni, Reykjanesbæ
Þriðjudag 28. febrúar kl. 9.00 – 12.00 í Félagsheimilinu Hvoli, Hvolsvelli
Mánudag 5. mars kl. 9.00 – 12.00 á Hótel Héraði, Egilsstöðum
Miðvikudag 7. mars kl. 10.00 – 13.00 í Edinborgarhúsinu á Ísafirði
Nánari upplýsingar um fundina verða birtar á heimasíðu Mannvirkjastofnunar, mvs.is.
Nýja reglugerðin og ýmis skýringarrit eru aðgengileg á heimasíðunni og frá og með 15. febrúar verður streymi frá fyrsta fundinum gert aðgengilegt þar. Hægt er að finna síðuna með streyminu í slóðinni hér að neðan.
Skoða síðu með streymi frá kynningarfundinum þann 10.02.2012
Aðgangur að fundunum er ókeypis.
Deila með vinumTIL BAKA
Byggingarmál
Rafmagnsöryggi
Löggildingar
Um stofnunina
Forvarnir
Skúlagötu 21 · 101 Reykjavík · Sími: 591 6000 · Fax: 591 6001 · mvs@mvs.is · Opið frá kl. 8:30 - 16:00 virka daga

